Opnum í maí í TRAILCENTER, Hveragerði

SantaCruz Iceland

Við elskum að hjóla

um okkur

Santa Cruz á Íslandi er hjólabúð fjallahjólaranna - í fjöllunum. Verslunin er rekin af Icebike Adventures sem hefur síðasta áratug byggt upp innviði fyrir fjallahjólreiðar. Við erum hjólarar af lífi og sál. Crúzaðu með í sumar.

Með hjólinu þínu fylgir...

Demo hringur

Komdu á demo dag og prófaðu SC hjól í nokkrum gerðum á alvöru fjallahjólaleiðum og fáðu ráðgjöf við innkaupin. Bókaðu tíma hér.

Shuttle service

Ókeypis aðgangur í „Hengill shuttle service“ daga í sumar með Icebike Adventures sem byrja og enda í Trailcenter Reykjadal.

„Ég er með“ miðinn

Þú færð „Ég er með“ límmiðann og tekur með því þátt í uppbyggingunni, færð afnot af þvottaaðstöðu og kaffi í Trailcenter Reykjadal.

Upphersla

Komdu í kaffi með hjólið og við rennum yfir það og herðum upp á teinum og linkum og endurstillum gíra og fl. Gildir í tvo mánuði frá kaupum.

Námskeið og viðburðir

25% afsláttur í allar dagsferðir og námskeið sem haldin verða á vegum Icebike Adventures í sumar.

Crúzaðu með!

5% af öllum keyptum Santa Cruz hjólum hjá okkur renna til uppbyggingar fyrir fjallahjólara og stígagerðar.

Bókaðu "demo hringinn"

Komdu og prófaðu Santa Cruz hjólin í sínu náttúrulega umhverfi hjá Icebike Adventures og mátaðu þig við mismunandi gerðir. Gerðu ráð fyrir klukkutíma, verð 9.500kr. Ef þú verslar SC hjól af okkur innan 3 mán. gengur andvirði leigunnar upp í nýja hjólið og 5% af þínu hjóli renna sjálfkrafa beint til uppbyggingar á fjallahjólaleiðum. Taktu þátt í uppbyggingunni og crúzaðu með!

Bóka tíma