Finnum draumahjólið sem hentar þér.
Þú átt það skilið!
Við elskum að hjóla
Santa Cruz á Íslandi er hjólabúð fjallahjólaranna - í fjöllunum. Verslunin er rekin af Icebike Adventures sem hefur síðasta áratug byggt upp innviði fyrir fjallahjólreiðar. Við erum hjólarar af lífi og sál. Crúzaðu með í sumar.
Með hjólinu þínu fylgir...
Demo hringur
Komdu á demo dag og prófaðu SC hjól í nokkrum gerðum á alvöru fjallahjólaleiðum og fáðu ráðgjöf við innkaupin. Bókaðu tíma hér.
Shuttle service
Ókeypis aðgangur í „Hengill shuttle service“ daga í sumar með Icebike Adventures sem byrja og enda í Trailcenter Reykjadal.
„Ég er með“ miðinn
Þú færð „Ég er með“ límmiðann og tekur með því þátt í uppbyggingunni, færð afnot af þvottaaðstöðu og kaffi í Trailcenter Reykjadal.
Upphersla
Komdu í kaffi með hjólið og við rennum yfir það og herðum upp á teinum og linkum og endurstillum gíra og fl. Gildir í tvo mánuði frá kaupum.
Námskeið og viðburðir
25% afsláttur í allar dagsferðir og námskeið sem haldin verða á vegum Icebike Adventures í sumar.
Crúzaðu með!
5% af öllum keyptum Santa Cruz hjólum hjá okkur renna til uppbyggingar fyrir fjallahjólara og stígagerðar.
Vinsælasta stelpan á ballinu!
Heckler SL
Þetta verður þú að prófa! Svo svakalega spennandi hjól! Ótrúlegt létt og lipurt midrange raf-fjallahjól með eiginleika venjulegs hjóls,en með 60nm aðstoð upp brekkurnar. Fullkomið fyrir létta og sterka hjólara sem þurfa ekki stóru sleggjuna, vilja ekki fórna léttleikanum fyrir rafmagnið - en vilja sama range og stærri hjólin. Klárlega fallegasta rafhjól sem völ er á að okkar mati! Komdu, sjáðu og prófaðu þetta geggjaða tæki!
- Fram dempun - 160mm
- Aftur dempun - 150mm
- Dekkjastærð - MX F29 / R27.5
- Stell - Carbonfiber
- Mótor - Fazua 60nm
- Rafhlaða - 430wh
Bókaðu "demo hringinn"
Komdu og prófaðu Santa Cruz hjólin í sínu náttúrulega umhverfi hjá Icebike Adventures og mátaðu þig við mismunandi gerðir. Gerðu ráð fyrir klukkutíma, verð 9.500kr. Ef þú verslar SC hjól af okkur innan 3 mán. gengur andvirði leigunnar upp í nýja hjólið og 5% af þínu hjóli renna sjálfkrafa beint til uppbyggingar á fjallahjólaleiðum. Taktu þátt í uppbyggingunni og crúzaðu með!